Skipið Mistral hefur siglingar til Þorlákshafnar
Enn styrkist staða Þorlákshafnar.
Smyril Line bætir við sig sjötta skipinu og bætir siglingum til Noregs við leiðakerfið
28 júlí 2020

Nýja skipið heitir Mistral og þykir í senn öflugt og gott. Um er að ræða 153 metra langt skip og 21 m breitt, byggt 1998. Djúprista þess er 7 metrar. Skipið er því heldur stærra en Akranesið. Mistral mun leysa Akranes af í siglingum milli Hirtshals og þorlákshafnar og Akranes fer í nýju siglingaleiðina.
Það er ómetanlegt fyrir okkur hér í Ölfusi að finna þann kraft, það þor og þá fagmennsku sem Smyril Line býr yfir. Samstarfið við þau er orkan sem kyndir ofninn sem knýr sóknina. Ekki þarf að efast um að þessi viðbót mun skapa enn frekari tækifæri fyrir okkur hér í Þorlákshöfn þar sem siglingaleiðin hér tengist nú beint við flutninga milli Noregs og Rotterdam og öfugt. Við erum sannfærð um að enn stærri sóknar skref eru innan seilingar.
