Kanna mögulegan háhita til rafmagnsframleiðslu í Ölfusi með 100 MW virkjun í huga.
Reykjavík Geothermal og Sveitarfélagið Ölfus hafa komist að samkomulagi
Fyrst og fremst horft til nýtingar orkunnar innan Sveitarfélagsins Ölfuss
28 ágúst 2020
Samkomulag Ölfuss og Reykjavík Geothermal felur það í sér að ef rannsóknir benda til nýtanlegs jarðhita á svæðinu, munu aðilar ráðast í viðræður um hvernig best verður hægt að haga og samræma uppbyggingu og rekstur virkjunar með hliðsjón af áherslu Orku- og auðlindastefnu Ölfuss. Samstarf og samráð við Sveitarfélagið Ölfus mun hafa forgang.
Framkvæmdir vegna rannsókna munu hefjast á næstu mánuðum. Til að finna og meta stærð mögulegra jarðhitasvæða verður einkum notast við viðnámsmælingar á yfirborði. Lítið sem ekkert jarð- eða gróðurrask verður við þessar athuganir.
Ekki þarf að efast um hversu mikilvægt það er fyrir Sveitarfélagið Ölfus -íbúa og fyrirtæki- að markvisst sé unnið að áframhaldandi uppbyggingu á þeim innviðum er snúa að orkuöflun og dreifingu. Ekki hvað síst er það mikilvægt í ljósi vaxandi fjölda íbúa auk afar umfangsmikillar uppbyggingar í atvinnulífinu svo sem með örum vexti matvælafyrirtækja, áframhaldandi vexti hafnarinnar og tilkomu nýrra iðnfyrirtækja.
