Næsti forseti Íslands verður Katrín Jakobsdóttir.

Katrín Jakobsdóttir hefur verið með eyrað við jörðina. Hlustað, metið og pælt í því hvað hún eigi að gera varðandi forsetaframboð. Á seinustu dögum hefur hún verið að styrkjast í afstöðu sinni til forsetaframboðs og sannarlega stigið þannig fram.

Ekki þarf að efast um að Katrín Jakobsdóttir er ein þeirra sem orðið getur glæsilegur fulltrúi á Bessastöðum.


Auðvitað er það þannig að þegar maður hefur grun um eitthvað þá fer maður að lesa í aðstæður til að leita að því sem staðfestir grun manns. Eftirfarandi vísbendingar um hvað Katrín er að hugsa hafa þó vart framið fram hjá þeim sem fylgjast með:

 

 

Mín spá er þessi:

Á næstu dögum, (þegar ró er komin á í kringum kjaramál, lausnir fundnar á húsnæðismálum Grindvíkinga, festa aukin í málefnum hælisleitenda og fl.) verður unnin skoðunarkönnun á stöðu Katrínar.  Hún kemur til með að mælast vel, enda greind og góð manneskja.

Fyrir páska gefur hún út að hún sækist eftir embætti forseta Íslands.

Stórlaxarnir sem hafa verið að máta sig draga sig í hlé.

1. júní n.k. verður Katrín Jakobsdóttir kjörinn forseti Íslands.

 

Áhrif þess fyrir ríkisstjórnina verður......

Previous
Previous

Fáránleg ákvörðun framkvæmd á fáránlegan máta.

Next
Next

Börnin skildu ekki “brotalínu menningarstríðs“ og gerðu sig sek um “rasisma”.